Margrét Jónsdóttir
Margrét rekur verslunina í Þingborg.
S 486 3377 og 846 9287
Hvenær byrjaðir þú í Þingborg/handverki?
Ég var í fyrsta námskeiðshópnum í Þingborg 1990 og hef verið með frá stofnun félagsins 1991. Ég ólst upp við handavinnu og handverk.
Hvað framleiðir þú helst/Hvað er vinsælast?
Ég framleiði peysur, prjónapakkningar, uppskriftir og hef gefið út prjónabók. Hanna sjálf það sem ég framleiði.
Tekur þú að þér að gera eftir pöntun og hvað þá helst?
Hægt er að panta hjá mér peysur.
Hér eru myndir af hluta þess sem Margrét hefur hannað.



