Breidd á kembum er 40 cm og lengd u.þ.b. 2 metrar. Þykkt og þyngd kembanna getur verið mismunandi.
Hægt er að samkemba liti og ólík hráefni í kembivélinni og fá þannig ýmis tilbrigði í kemburnar.
Lyppur eru þykkar lopalengjur sem eru tilbúnar fyrir handspuna og einnig góðar í smærri flókastykki. Lyppurnar eru sívalningar í rúllu og þægilegt að spinna beint úr þeim.
Verð pr. kíló
Þvegin ull kr. 4.250.-
Sauðalitir kr. 6.100.-
Sýrulitir kr. 7.182.-
sauðalitir með litum – marmari kr.6.450-.
sauðalitir með fiðu(kanínuull) – marmari kr. 7.440.-
Ekki til sem stendur
skrautlyppur kr. 7.440.-
Ekki til sem stendur
Skólar og handverkshópar fá 10% afslátt.